Skákhátíð, skák og mát

Skákhátíð Fulltings fer vel af stað

Hér má sjá myndband af setningu þessa skemmtilega viðburðar

Fulltingi er bakhjarl stærsta innlenda kappskákmótsins árið 2023. Rúmlega 50 skákmenn á öllum aldri og báðum kynjum taka þátt, þar af 19 alþjóðlegir titilhafar.

Í þessum hópi eru nokkrir af öflugustu og efnilegustu skákmönnum þjóðarinnar.

Teflt er á mánudögum kl. 19.30 í safnaðarheimili Vídalínskirkju í Garðabæ og eru gestir velkomnir.

Mótinu lýkur mánudaginn 27. febrúar kl. 19.30 með hraðskákkeppni og er öllu skákáhugafólki heimil þátttaka í henni.

Fleiri greinar

Fulltingi opnar nýjan vef Fréttir 19. janúar 2022 Hver stendur Vörð um þína hagsmuni? Fréttir / dómar / pistlar 12. febrúar 2022 Dómur Landsréttar í máli nr. 537/2020 Fréttir / dómar / pistlar 23. febrúar 2022 Breytingar hjá Fulltingi Fréttir 16. júní 2022 Opnunartími í des 2022 Fréttir 13. desember 2022 Skákhátíð Fulltingis fer vel af stað Fréttir 17. janúar 2023 Skákmót, Fulltingi