Líkamsárás
Líkamsárás
Lögregla svo lögmaður
Ef þú verður fyrir líkamsárás, getur þú átt rétt á bótum frá árásarmanninum. Áður en til þess kemur er nauðsynlegt að þú kærir árásina til lögreglunnar.
Þegar um alvarlega líkamsárás er að ræða getur þú sem þolandi átt rétt á bótagreiðslu úr ríkissjóði samkvæmt ákvörðun bótanefndar. Ríkissjóður sér svo um að innheimta þann hluta bótanna frá árásarmanninum.
Áður en sá sem fyrir árásinni varð leggur fram bótakröfu í líkamsárásarmáli, er nauðsynlegt að leita ráða hjá lögmanni sem hefur reynslu af slíkum kröfum.
Stattu vörð um þinn rétt! Þú getur mögulega átt rétt á bótum vegna:
- þjáningar
- tekjutaps
- miska
- örorku
- o.s.frv.