IS / EN / PL
Search
Close this search box.
Frítímaslys
Afleiðing læknismerðferðar Líkamsárás Sjóslys Vinnuslys
Vélhjólaslys Bílslys
play_circle_outline play_circle_outline

Umferðarslys

Ef þú verður fyrir líkamstjóni vegna notkunar á bíl, er réttur til bóta fyrir hendi úr ábyrgðartryggingu bílsins fyrir farþega og aðra sem slasast. Valdi ökumaðurinn sjálfur óhappinu, sem hann slasast í, á hann bótarétt úr slysatryggingu ökumanns og eiganda. FRÍTT VIÐTAL SPURNINGAR

Umferðarslys

Ökumaður jafnrétthár

Slysatryggingin er lögboðin eins og ábyrgðartryggingin. Ekki þarf að sanna sök til að eiga rétt á bótum vegna umferðarslyss. Bótarétturinn er einfaldlega fyrir hendi ef slys verður. Algengt er að fólk átti sig ekki á bótarétti sínum eftir umferðarslys, verði það fyrir líkamstjóni. Það er t.d. útbreiddur misskilningur að fólk í órétti eigi ekki bótarétt vegna líkamstjóns sem það verður fyrir í umferðarslysi. Þetta er alrangt. Stór hluti af iðgjaldi fyrir hverja bifreið fer til tryggingar sem nefnist slysatrygging ökumanns og eiganda. Sú trygging á að gera ökumanninn jafnsettan farþegum. Bótaskylt tryggingafélag á að bæta þeim sem lenda í umferðarslysum eftirtalið:

  1. Útlagðan kostnað vegna slyssins s.s. kostnað vegna heimsókna til lækna, kostnað vegna sjúkrabifreiða, lyfjakostnað, sjúkraþjálfunarkostnað ofl. ásamt tjóni á fatnaði.
  1. Tekjutap. Verði fólk óvinnufært vegna slyss á það rétt á að fá tekjutapið greitt frá tryggingafélaginu eftir að launarétti lýkur hjá vinnuveitanda, þar til stöðugleikamarki er náð.
  1. Þjáningarbætur.
  1. Miskabætur.
  1. Bætur fyrir varanlega örorku.
  1. Lögfræðikostnað að stærstum hluta.
  1. Annað fjártjón.
Bílslys landscape